Skálmöld_-_Club_202,_2014.12.10_(4).JPG
Summary
Description Skálmöld - Club 202, 2014.12.10 (4).JPG |
English:
Live on the 10th of December 2014. Budapest, Club 202. Skálmöld. Skálmöld er risin!
Skálmöld var stofnuð í ágúst 2009 af sex mönnum sem þekktust mismikið en áttu það sameiginlegt að hafa verið að einhverju leyti sýnilegir í íslensku tónlistarlífi, fæstir þó í harðari tegund tónlistar. Rætur meðlimanna flestra liggja þó í þungarokkinu og því var strax ljóst hvert stefndi. Fyrsta plata Skálmaldar, „Baldur“, kom út síðla árs 2010 og náði strax undraverðum vinsældum, bæði í rokkgeiranum en líka hjá fólki sem ólíklegra er til að hlusta á þessa tegund tónlistar. Í framhaldi af velgengni á heimaslóðum var platan gefin út á heimsvísu af austurríska útgáfurisanum Napalm Records og síðan þá hefur Skálmöld spilað á fjölmörgum tónleikum, bæði heima og utan, og vinsældir vaxið jafnt og þétt. Önnur plata sveitarinnar, „Börn Loka“ kom út síðla árs 2012 og var fylgt eftir með tónleikahaldi um víða veröld fram eftir ári 2013. Árið náði síðan hápunkti er Skálmöld lék tónlist sína þrívegis frammi fyrir fullri Eldborg, ásamt Sinfóníuhljómsveit Íslands, Karlakór Reykjavíkur, Kammerkórnum Hymnodiu og barnakór Kársnessskóla. Hljóð- og mynddiskur kom út í framhaldinu og hlaut metsölu. Tónlist Skálmaldar hefur verið kennd við víkinga og er það engin furða. Textar sveitarinnar, sem allir fylgja fornum íslenskum bragarháttum, eru í víkingastíl, yrkisefnið bardagar og goðafræði, og andrúmsloftið rammíslenskt. Tónlistin sjálf er þungarokk af gamla skólanum, kryddað með áhrifum frá þjóðlagaarfinum í bland við nýrri strauma. Útkoman er aðgengilegt og tilfinningaþrungið rokk sem lætur engan ósnortinn. Tónleikar Skálmaldar eru kafli út af fyrir sig. Þar nýtur sveitin sín best og hrífur áhorfendur með sér með frumkrafti og spilagleði. Þessi upplifun verður þó alls ekki fullútskýrð með orðum og því er sjón sögu ríkari.
Magyar:
A felvételek 2014. december 10-én készültek a Club 202-ben. Skálmöld együttes. Izlandi (Reykjavik) metál együttes.
Tagok: Baldur Ragnarsson - Guitar/Vocals Björgvin Sigurðsson - Vocals/Guitar Gunnar Ben - Keyboards/Vocals/Oboe Jón Geir Jóhannsson - Drums/Vocals Snæbjörn Ragnarsson - Bass/Vocals Þráinn Árni Baldvinsson - Guitar/Vocals
|
Date | |
Source | Own work |
Author | Derzsi Elekes Andor |
Licensing
-
You are free:
- to share – to copy, distribute and transmit the work
- to remix – to adapt the work
-
Under the following conditions:
- attribution – You must give appropriate credit, provide a link to the license, and indicate if changes were made. You may do so in any reasonable manner, but not in any way that suggests the licensor endorses you or your use.
- share alike – If you remix, transform, or build upon the material, you must distribute your contributions under the same or compatible license as the original.